Já, halló, Óskar heiti ég og stjórna þessu bloggi. Ég vildi koma
því strax fram að ég kom þessu bloggi ekki einungis á fót til
þess að dútla á því þegar ég get ekki sofnað, eða nenni því ekki
eins og núna, heldur líka til þess að leiðrétta og leiðbeina,
og jafnvel mótmæla þeim orðum sem systir mín hefur látið
falla, og þá gjarnan inn á sínu eigin bloggi... ójá, ég held að hún
viti alveg hvað ég eigi við. Hún á það nefnilega til að koma
með fullyrðingar sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum, heldur
aðeins í myrkum hugskotsjónum hennar... Hún sagði að ég væri lengi
í sturtu, 3 tíma. Þetta getur nú varla verið satt, þar sem ég hef
aldreigi verið lengur en 30 mín. En hún er reyndar búin að minnka
þetta niður í 1,5 tíma... pff, ég gæti skrifað um þessa vitleysu
endalaust, en ætla ekki að gera það, því það styttist í
skóla...
En ég hef nú meira að segja en þetta... Var nú á balli síðustu
nótt, og bárust mér margar játningar, en fæstar frá kvenmönnum.. En
var nú í lagi þar sem þetta var ekkert subbulegt... Annars var
ballið ágætt... Morguninn eftir vaknaði ég svo kl 13.30, og fór að
læra undir landafræði próf... Það gekk að vísu ekki vel þar sem
ághuginn var MJÖG lítill. Svo fóru frændur mínir og vinir tveir,
Binni og Frímann, sem höfðu verið hjá mér um helgina, heim til sín
og skildu mig einan eftir við lesturinn.. En ég nennti ekki að
lesa... Þegar ég átti að fara að sofa fór ég bara að horfa á Lion
king 3 og strax á eftir The League of extraordinally
gentlemen.. snilldar myndir... Svo fór ég bara hingað niður í
tölvuna... En nú er nóg komið að þessum skriftum að sinni... verið
þið sæl...